Samstarfsaðilar

PayAnalytics er öflugur hugbúnaður fyrir launagreiningar og gefur mannauðssérfræðingum og stjórnendum greinargóðar upplýsingar sem hægt er að byggja ákvarðanir á. 

Við vinnum meðal annars með ráðgjafastofum, lögfræðisstofum og vottunaraðilum til að dreifa boðskap um launajafnrétti sem víðast. 

Við viljum gjarnan ræða möguleikana á samstarfi. Sendu okkur línu og tölum saman.

Alþjóðleg ráðgjafafyrirtæki

Við vinnum með alþjóðlegum ráðgjafafyrirtækjum sem vilja gera launagreiningar viðskiptavina sinni einfaldari.

Samþættingar

Með samþættingu við PayAnalytics getur þú boðið viðskiptavinum þínum upp á heildstæðari þjónustu. Samþætting skerpir samkeppnisforskot og eykur ánægju viðskiptavina.

Staðbundnir mannauðssérfræðingar

PayAnalytics auðveldar þér að uppfylla staðbundnar kröfur um allan heim. Góð sambönd okkar við mannauðs- og launasérfræðinga með staðbundna sérþekkingu eiga stóran þátt í vöruþróun okkar.

Lögfræðistofur

Lögfræðistofur geta notað hugbúnaðinn í ráðgjöf við viðskiptavini sem hafa áhyggjur af lögsókn vegna launamismununar.

Vottunaraðilar

Við erum í samstarfi við leiðandi vottunaraðila um allan heim. Lausnin okkar hjálpar fyrirtækjum að taka saman á einfaldan hátt þær upplýsingar og gögn sem þörf er á fyrir umsóknir til vottunaraðila.