1. Forsíða
  2. Hugbúnaður
  3. Aðgangsstýringar

Aðgangsstýringar

Aðgangsstýringar notenda

Hver notandi fær aðgang að þeim hlutum hugbúnaðarins sem hann þarf að nota. PayAnalytics gerir þér kleift að stjórna persónulegum aðgangi notanda eða búa til notendahlutverk sem samnýta aðgangsstillingar fyrir marga notendur.

A graphic that highlights the UI of the User Access Controls in PayAnalytics.

Veittu notendum þínum aðgang að því sem þeir þurfa

Þegar kemur að gögnum og aðgerðum hafa mismunandi notendur mismunandi þarfir. Notendur PayAnalytics Enterprise geta á einfaldan hátt sérsniðið aðgangsstillingar, jafnvel þau sem hafa marga notendur með mismunandi hlutverk.

Aðgengi að gögnum

Þú getur sérsniðið aðgang hvers notanda að starfsmannagögnum eftir þörfum viðkomandi:

  • Á notandinn einungis að sjá starfsfólk í tiltekinni deild?
  • Á notandinn einungis að geta skoðað tilteknar upplýsingar um starfsfólk (t.d. skoða laun án þess að geta auðkennt einstaka starfsmenn)? 
  • Á notandinn að geta skoðað nákvæmar upplýsingar um starfsfólk eða ætti hann aðeins að sjá samtölur?

Sveigjanlegar merkingar

Þú getur notað merki til að stjórna aðgangi að mismunandi hlutum (t.d. starfsmannagögnum eða starfsmati):

  • Skilgreindu hvaða merkjum notandinn fær aðgang að. Aðganginum er stjórnað með því að bæta við merkjum eða fjarlægja þau af hverjum hlut fyrir sig. 
  • Aðgangsstýringar byggðar á merkjum koma víða að gagni: 
    undefined

Eitt kerfi - margar einingar

Sérsniðinn aðgangur:

Mismunandi notendur hafa mismunandi verkefni og hægt er að sérsníða aðgang þeirra að ólíkum einingum kerfisins eftir þörfum hvers og eins. Ef notandinn vinnur til dæmis við ráðningar þarf hann að öllum líkindum ekki aðgang að öðru en Launaráðgjafa.

Heimilar aðgerðir

Þú getur ákveðið hvaða aðgerðir hver notandi getur framkvæmt í PayAnalytics:

  • Á notandinn að geta hlaðið upp starfsmannagögnum?
  • Á notandinn að geta keyrt jafnlaunagreiningar?
  • Á notandinn að geta breytt kerfisstillingum?
  • Á notandinn að geta stýrt aðgangi annarra notenda?

Viltu vita meira um PayAnalytics?