1. Forsíða
  2. Hugbúnaður
  3. Launagreiningar

Launagreiningar

Mældu launabilin

Jafnlaunagreining snýst ekki bara um að mæla launabil, heldur er það öflugt ferli sem hjálpar þér að skilja launastrúktúrinn. Með því að skoða hvaða þættir hafa áhrifa á laun (og hversu mikil áhrif), geturðu tekið betri ákvarðanir í framtíðinni.

Grafík sem sýnir launagreiningar í hugbúnaðinum.
A graphic with yellow and red abstract forms.

Leiðrétt launabil

Leiðrétt launabil mælir launamun eftir kyni, kynþætti og öðrum breytum eftir að tekið hefur verið tillit til hlutlægra þátta sem hafa áhrif á laun (eins og starfaflokkur, menntun og reynsla). 

PayAnalytics notar aðhvarfsgreiningu til að reikna út launabil.

Finndu útlaga

PayAnalytics hjálpar þér að bera kennsl á útlaga – starfsfólk sem er með mun hærri eða mun lægri laun en það ætti að vera með. Settu þak á þennan mun og fáðu betri skilning á frávikum í launastrúktúrnum.

Undirhópagreining

Auðvelt er að brjóta niður stór gagnasett (t.d. eftir löndum eða mörkuðum) og keyra sömu jafnlaunagreiningu á alla undirhópa. Slík greining dregur fram ólíkan launastrúktúr og sýnir svart á hvítu hvernig launabil eru í ólíkum hópum.

Hvað ákvarðar laun?

Eftir að greining hefur verið keyrð gefur PayAnalytics nákvæmt yfirlit yfir þá þætti sem ákvarða laun (eins og menntun, reynslu o.s.frv.) ásamt áhrifum þeirra.

Hvað gerir aðhvarfsgreining?

Launagreiningar nota aðhvarfsgreiningu til að reikna leiðrétt launabil. Þar er launamunur mældur fyrir allt að tvær lýðfræðibreytur í einu – saman eða sitt í hvoru lagi.

Frekar en að reikna út meðaltal launa allra starfsmanna, tekur aðhvarfsgreining tillit til hlutlægra þátta sem ákvarða laun. Samhliða lýðfræðilegum gögnum sýnir þessi nálgun hvort hlutdrægni valdi launamun - og hversu mikill sá munur er.

Bókaðu kynningarfund í dag