1. Forsíða
  2. Hugbúnaður

Viltu búa til sanngjarnari vinnustað?

Taktu réttu skrefin í átt að sanngjarnari vinnustað. Fáðu góða yfirsýn yfir launastrúktúr fyrirtækisins og skýra mynd af dreifingu og fjölbreytileika starfsfólks, framkvæmdu launaúttektir, fylgdu reglugerðum og lokaðu launabilum - allt í einum hugbúnaði.

Gagnadrifin nálgun í ákvarðanatöku

Grafík af tveimur tölvum.

PayAnalytics byggir á yfir áratug rannsókna. Hugbúnaðurinn er notaður í yfir 75 löndum af fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum til að bæta jafnrétti á vinnustöðum.

Hugbúnaðurinn okkar er hannaður til að koma þér af stað með lágmarks uppsetningu – ásamt kennslumyndböndum og  góðri handbók. Byrjaðu að mæla með þeim gögnum sem þú hefur, og byggðu ofan á þau jafnt og þétt eins og þér hentar.

Þarftu frekari leiðsögn? Sérfræðingar okkar í jafnlaunamálum geta hjálpað þér af stað með þeim stuðningi og þeirri þjálfun sem henta þér.

Fimm skref í átt að launajafnrétti

Öflugir eiginleikar kerfisins hjálpa þér að taka þær ákvarðanir sem þarf að taka á öllum stigum. PayAnalytics hentar fyrirtækjum og stofnunum af öllum stærðum, óháð atvinnugrein eða staðsetningu.

Undirbúa

Byrjaðu með þau gögn sem þú hefur

Fyrsta skrefið er undirbúningur. Byrjaðu á að safna saman gögnum um starfsfólk og taktu ákvarðanir um þína launastefnu. Á þessum tímapunkti er hægt að byrja að meta hvaða þættir (t.d. hæfni og framlag) ættu að hafa áhrif á laun. Skilgreindu hvernig á að flokka eða meta þau störf sem unnin eru.

Eiginleikar hugbúnaðarins sem hjálpa þér við undirbúningsferlið

Mæla

Framkvæmdu greiningar á launastrúktúrnum og samsetningu starfsmannahópsins

Mældu launabilið og framkvæmdu greiningar á starfsmannahópnum til þess að finna misræmi og bæta úr því. Innsýn í launstrúktúrinn og samsetningu hópsins gefur þér betri skilning á hvar vandamál gætu legið og hjálpar þér að taka betri ákvarðanir fyrir framtíðina. 

Eiginleikar hugbúnaðarins sem hjálpa þér að mæla og fá innsýn

Loka

Lokaðu launabilum og tryggðu jafnan aðgang að tækifærum.

Nýttu þann skilning sem þú hefur öðlast til að taka upplýstar ákvarðanir um laun, ráðningar, stöðuhækkanir og tilfærslur. Lokaðu launabilum á þínum hraða í takt við þína forgangsröðun til þess að færast sífellt skrefi nær sanngjarnari vinnustað. 

Eiginleikar hugbúnaðarins sem hjálpa þér að loka launabilum

Upplýsa

Notaðu innbyggðar skýrslur eða smíðaðu þínar eigin

Lagaumhverfi um launajafnrétti og launagagnsæi er í stöðugri þróun. PayAnalytics býður upp á innbyggð sniðmát til að útbúa skýrslur sem uppfylla ólíkar reglugerðir, en þú hefur einnig sveigjanleika til að smíða sérsniðnar skýrslur, t.d. til að kynna fyrir stjórn.

Eiginleikar hugbúnaðarins sem hjálpa þér að fara eftir lögum og reglugerðum

Viðhalda

Viðhaltu árangrinum með gagnadrifinni ákvörðunartöku

Viðhaltu árangrinum með því að tryggja að hver einasta launaákvörðun sé í samræmi við launastefnuna þína. Fylgstu með breytingum og þróun yfir tíma til að tryggja að launabil opnist ekki aftur. Með réttum ákvörðunum stuðlar þú að fjölbreyttari og sanngjarnari vinnustað til lengri tíma.

Eiginleikar hugbúnaðarins sem hjálpa þér að viðhalda árangrinum

Enterprise: Aðgangsstýringar

PayAnalytics býður upp á auknar aðgangsstýringar sem henta vel fyrir stærri fyrirtæki með marga ólíka notendur í kerfinu. Hver notandi er einstakur og hefur mismunandi þarfir, og við gerum þér auðvelt fyrir með að stjórna aðgengi hvers og eins.

Enterprise útgáfa

Öryggi

PayAnalytics er hannað til að uppfylla ströngustu öryggiskröfur. PayAnalytics er vottað samkvæmt ISO/IEC 27001:2013 og uppfyllir kröfur GDPR. Öryggi hugbúnaðarins byggir á bestu starfsháttum tæknigeirans þegar kemur að trúnaði, geymslu gagna og auðkenningu.

Byrjaðu strax í dag!