1. Forsíða
  2. Hugbúnaður
  3. Gagnastjórnun

Gagnastjórnun

Leyfðu gögnunum að tala sínu máli

PayAnalytics stillir myndrænt upp launastrúktúrnum þínum. Hægt er að rýna í launagögnin eftir breytum eins og kyni, kynþætti eða uppruna. Hvort sem þú vilt horfa á heildarmyndina, eða kafa dýpra fyrir einstaka hópa þá er auðvelt að horfa á gögnin frá mismunandi sjónarhornum.

Grafík sem gefur innsýn inn í kerfið.

Láttu launagögnin vinna fyrir þig

Þú getur flutt gögnin þín yfir í PayAnalytics á þann hátt sem hentar þér best – með því að hlaða niður gögnum úr mannauðs- eða launakerfinu þínu eða í gegnum API-tengingu. Þegar þeim hefur verið hlaðið upp sýnir hugbúnaðurinn strax myndrænt yfirlit yfir launastrúktúrinn, svo þú getir greint mynstur og frávik áður en nokkur greining er keyrð.

Hægt er að flytja upplýsingar beint yfir í Microsoft 365 fyrir frekari vinnu utan kerfisins eða nota API-tenginguna okkar til að tengjast tólum sem þú kýst til að nota til frekari gagnavinnslu (t.d. Tableau og önnur kerfi).

Uppfærðu gögnin eftir þörfum

Með PayAnalytics geturðu uppfært gögnin sem þú hleður upp og gert þær breytingar, leiðréttingar og viðbætur sem þú þarft. Allar breytingar eru skráðar í kerfinu og því hefurðu yfirsýn yfir allar nýjustu upplýsingar á einum stað.  PayAnalytics býður einnig upp á “merkingar” sem hjálpa þér að hafa yfirsýn yfir öll gagnasöfnin þín.

Auðvelt að vinna með launaþætti og samtölur

Í PayAnalytics geturðu skalað launagögn starfsmanna í hlutastarfi og fullu starfi, eins og grunnlaun og bónusa. Einnig er hægt að sameina launaþætti til að búa til nýjar launasamtölur. Auk þess er auðvelt að vinna með gögn í mismunandi gjaldmiðlum.

Myndræn framsetning

Með myndrænni framsetningu á launastrútkúrnum er hægt að greina launaþróun, draga fram útlaga og finna undirliggjandi ástæður launabils.

Með PayAnalytics færðu myndrænt yfirlit yfir gögnin þín út frá mismunandi sjónarhornum. Þú getur valið á milli hvaða breytu sem er (eins og starfaflokks eða grade/level) og borið saman ólíka lýðfræðihópa. 

Notaðu síur til að sjá launadreifingu smærri hópa—t.d. eftir einstökum starfaflokkum eða teymum.

Betri stuðningur með meiri upplýsingum

PayAnalytics styður margar tegundir gagna sem hægt er að nota við launaákvarðanir.

  • Launaspannir: Þú getur bæði hlaðið upp launaspönnum eða búið til spannir út frá fyrirliggjandi upplýsingum um starfsfólk. Þannig sérðu hvar starfsfólk er staðsett innan þeirra og getur tryggt að engin falli utan sinnar spannar.
  • Markaðslaun: Hægt er að hlaða upp markaðslaunum og hafa til hliðsjónar þegar launaákvarðanir eru teknar.